Búrfell í Mývatnssveit
Búrfell í Mývatnssveit er fjall sem marga hefur langað til að klífa en viljað hafa kunnuga með sér. Þóroddur Þóroddsson og Kristinn Björn Haraldsson fóru með 18 manna hóp þann 23. ágúst. Þetta var krefjandi ferð, mjög grýtt og brattar skriður. En þetta tókst og margir glaðir með að hafa komist þetta. Myndirnar sem fylgja tók Þóroddur fararstjóri.









