Næsta barna- og fjölskylduferð 30. júní: Náttúruskoðun í Krossanesborgum
28. júní 2021

Náttúruskoðun í Krossanesborgum
Mæting kl. 17
á neðra/stærra bílastæðið norðan við Óðinsnes.
Fararstjórn: Brynhildur Bjarnadóttir
Þátttaka ókeypis.
Fjölskyldurölt um Krossanesborgir þar sem sjónum verður beint að blómum og smádýrum. Þægilegur göngutúr fyrir allan aldur þar sem við stoppum reglulega, skoðum blómin og kíkjum á dýr eins og köngulær, flugur og ánamaðka. Gott að taka með stækkunargler. Ferðin tekur u.þ.b. 2 klst. Ekki þarf að skrá sig í þessa ferð.
