Næsta ferð 22.-23. febrúar: Þorraferð í Fjallaborg ef veður leyfir
19. febrúar 2020

Þorraferð í Fjallaborg á Mývatnsöræfum  skidiskidi

Brottför kl. 10  á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson. 
Verð: 12.000/8.000. Innifalið: Fararstjórn og gisting.
Ekið austur fyrir Námaskarð og gengið suður frá hringveginum, um 9 km veg í skálann Fjallaborg, sunnan undir Stórurauðku. Þar verður snæddur þjóðlegur þorramatur í friðsæld öræfanna. Haldið heim á leið næsta dag. Gönguhækkun lítil.
Í ferðum Ferðafélags Akureyrar þar sem sameinast er í bíla taka allir þátt í kostnaði með því að greiða bílstjóra hvers bíls fyrir sig.

Munið að skrá ykkur hér