Næsta ferð 29. maí: Hjóla- og gönguferð í Mývatnssveit
25. maí 2021

Brottför kl. 8
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Stefán Sigurðsson
og Ingimar Árnason
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn og flutningur á hjólum á sérhönnuðum kerrum.
Hjólað verður rangsælis umhverfis vatnið. Í leiðinni verður gengið á Vindbelg og Hverfell. Ferðinni lýkur í Reykjahlíð. Vegalengd 42 km. Gönguhækkun: Hverfell 140 m og Vindbelgur 250 m. Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur og huga að persónulegum sóttvörnum. Munið að skrá ykkur hér
.
