Samverustund í tilefni af 90 ára afmæli Ferðafélags Akureyrar var 8. apríl en þann dag 1936 var félagið formlega stofnað.
Yfir 100 manns sóttu þessa samverustund og var afar vel látið af aðalerindi dagsins þar sem Herdís Anna Jónsdóttir var með áhugaverða samantekt úr dagbókum föður síns Jóns Sigurgeirssonar frá Helluvaði sem tók þátt í frækilegri björgun áhafnar flugvélarinnar Geysis á Bárðarbungu árið 1950. Í erindi sínu studdist hún við myndir sem Eðvarð Sigurgeirsson ljósmyndari tók en hann var með í för. Eftir erindi Herdísar gæddu gestir sér á afmælistertu og spjölluðu saman.
Við þökkum gestum fyrir komuna og minnum á að það verða fleiri viðburðir tengdir afmælinu í vor og sumar. Um að gera að fylgjast vel með á heimasíðu FFA og á facebook.
Myndirnar sem fylgja tók Árni Ólafsson.
