Samverustund Ferðafélags Akureyrar
30. mars 2026

Samverustund Ferðafélags Akureyrar

Í tilefni af 90 ára afmæli félagsins verður dagskrá í Amtsbókasafninu miðvikudaginn 8. apríl kl. 17.


Dagskrá:

Gunnar Már Gunnarsson fer yfir vel valin brot úr sögu félagsins.

Herdís Anna Jónsdóttir flytur erindi um frækilegan leiðangur til að bjarga áhöfn Geysis  á Bárðarbungu 1950.

Myndasýning frá starfsemi félagsins síðustu tvo áratugi ásamt inngangi frá Hjalta Jóhannessyni.
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar kaffiveitingar.


Allir velkomnir

Stjórn FFA og afmælisnefndin