Sæmd gullmerki FÍ á afmælisári Ferðafélags Akureyrar
11. október 2026

Glatt á hjalla í Sviðamessu FFA

Nú síðastliðinn laugardag var hin árlega Sviðamessa Ferðafélags Akureyrar haldin í Ljósvetningabúð í Kaldakinn. Þar skemmtu félagsmenn sér við söng, ræðuhöld, og hljóðfæraslátt – og gæddu sér auðvitað á sviðum og hangilæri. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍ, heimsótti Norðlendinga að þessu sinni og kom reyndar færandi hendi. Í tilefni af 90 ára afmælisárinu, þá færði Páll þessari elstu deild FÍ veglega gjöf, sem samanstóð af 20 vönduðum ísöxum. Sannarlega góð gjöf það, enda mikilvægur öryggisbúnaður í ýmiskonar fjalla- og vetrarferðum.


Þetta var þó ekki endirinn á kvöldinu, því Páll sæmdi einnig sex einstaklinga gullmerki FÍ við þetta þetta tilefni. Öll ötulir félagsmenn Ferðafélags Akureyrar og hafa verið til margra ára.


Gullmerki FÍ er veitt þeim einstaklingum sem hafa með einum eða öðrum hætti unnið einstakt starf á vettvangi Ferðafélagi Íslands, á kjörsviðum þess og eftir stefnu og gildum. Einnig þeim aðilum utan félagsins sem unnið hafa einstakt starf á vettvangi ferðalaga á Íslandi, kynningar á íslenskri náttúru, náttúruverndar og fræðslu og unnið að bættu öryggi ferðamanna og öllu því sem greiðir götu ferðafólks um Ísland.


Þau sem voru sæmd gullmerki FÍ eru: 


Fjóla K. Helgadóttir

Fjóla er búin að vera virkur félagi í FFA síðan á 9. áratug síðustu aldar og verið i fjölda nefnda og í stjórn félagsins í mörg tímabíl. Núna er hún varaformaður stjórnar. Fjóla var í mörg ár skála- og landvörður í Dreka og Herðubreiðarlindum, var meðal annars einn fyrsti skála- og landvörðurinn í Dreka. Meðal verkefna hennar í stjórn félagsins undanfarin ár hefur verið að skipuleggja og halda utan um skálavörslu í Dreka og Herðubreiðarlindum. Fjóla hefur líka sinnt fararstjórn og skipulagt fjölda ferða, nú síðast hefur áherslan hjá henni verið á barna- og fjölskylduferðirnar.

 

Haukur Ívarsson

Nafn Hauks tengist líklega Herðubreiðarlindum sterkustum böndum hvað varðar störf hans fyrir Ferðafélag Akureyrar. Hann stóð þar vaktina sem nefndarformaður um áratuga skeið, líklega alveg frá árinu 1988 og samfellt til 2014 og síðan sat hann í Þorsteinsskálanefnd allt til ársins 2020 eða í rúm 40 ár. Einnig hefur Haukur setið í nefndum s.s. ferðanefnd og í stjórn félagsins þar sem hann var um skeið varaformaður. Þá hefur Haukur sinnt farastjórn í fjölda ferða og annast viðhald á búnaði og bílum félagsins af einskærri natni og haldið tilteknu eintaki gangandi löngu eftir að viðkomandi bíll varð fyllilega gjaldgengur sem fornbíll, enda er Haukur bifvélavirki að mennt.

 

Ólöf Tryggvadóttir

Ólöf eða Lóa eins og vinir hennar kalla hana er búin að starfa ötullega fyrir Ferðafélag Akureyrar síðan á 9. áratug síðustu aldar, en hún er eiginkona Hauks Ívarssonar og voru þau saman í vinnuferðum í Þorsteinsskála í áratugi. Ólöf er enn virkur félagi í Þorsteinsskálanefnd nú tæpum fimm áratugum síðar! Lóa hefur auk þessa verið dugleg við allskonar vinnu fyrir félagið, s.s. saumaskap og viðhald muna þess, og fram á síðustu ár hefur viðburðanefnd notið krafta hennar.

 

Einar Hjartarson    

Einar hefur verið einn af helstu máttarstólpum Ferðafélags Akureyrar um langt árabil. Hann hefur verið mjög lengi í stjórn, meðal annars sem varaformaður. Nú er hann gjaldkeri og búinn að vera í mörg ár. Einar er m.a. smiður að mennt og hefur ávallt verið liðtækur við smíðar á skálum félagsins en þar hefur verið í mörg horn að líta enda margir skálar sem risið hafa á undanförnum áratugum og aðrir þurft viðhalds við. Líklega verður nafn Einars þó alltaf tengt sterkustum böndum við Laugafell þar sem hann sinnir nefndarformennsku af miklum myndarbrag og hefur gert í 30 ár! Núna er hann svokallaður ráðsmaður hjá ferðafélaginu en líklega er fátt sem félli ekki undir þá starfslýsingu því Einar er vakinn og sofinn fyrir velferð félagsins og sinnir smáu og stóru fyrir það. Er alltaf boðinn og búinn til að skipuleggja og vinna hvaðeina er til fellur af verkefnum jafnt að að sumri sem vetri.

 

Grétar Grímsson

Grétar hefur verið lengi virkur félagi í FFA. Ferðanefnd, gönguleiðanefnd og Lambanefnd hafa notið krafta hans í ríkum mæli og eins var Grétar lengi einn af duglegustu fararstjórum félagsins. Þá hefur hann verið liðtækur við smíðar á skálum, brúm og öðru sem framkvæmt hefur verið á liðnum áratugum. Grétar er einstaklega úrræðagóður og þægilegur félagi.

 

Hjalti Jóhannesson

Hjalti er búinn að vera virkur félagi í FFA frá því rétt upp úr 1990. Hann er búinn að gegna mörgum hlutverkum innan félagsins og ýmsu tilfallandi sem honum hefur verið falið. Hann hefur setið í stjórn, verið formaður ritnefndar, í ferðanefnd, fararstjóri og í Þorsteinsskálanefnd og Bræðrafellsnefnd þar sem hann hefur verið formaður lengi. Þá hefur hann tekið virkan þátt í smíði nýrra skála og viðhaldi eldra húsnæðis á þessu tímabili.