Gönguleikurinn Þaulinn með Ferðafélagi Akureyrar 2026 Fullorðnir

Ef þið eruð ekki alveg viss um hvar þessir staðir eru þá getur verið gott að fletta þeim upp á maps.is
Gönguleikurinn Þaulinn með Ferðafélagi Akureyrar 2026
Krakkar

Ef þið eruð ekki alveg viss um hvar þessir staðir eru þá getur verið gott að fletta þeim upp á maps.is
Hvernig fer leikurinn fram?
Leikurinn skiptist í flokk fullorðinna annars vegar og flokk krakka yngri en 12 ára hins vegar. Hann gengur út á að fara á fimm stöðvar fyrir fullorðna og þrjár til fjórar stöðvar fyrir krakka.
Leikurinn er skemmtileg og góð afþreying fyrir alla fjölskylduna og glæsilegir vinningar!
Til að eiga möguleika á vinningi þarf að skila útfylltu og götuðu svarblaði á skrifstofu Ferðafélags Akureyrar.
Lokafrestur til að skila inn svarblaði er 20. september 2026
Á hverri stöð eru gögn frá FFA; kassi með plastumslagi og gestabók. Í umslaginu er gatari, kort og leyniorð eða þraut sem á að skrifa á svarblaðið.
Fyrirhugað er að hafa uppskeruhátið þegar leiknum lýkur og draga út vinningshafa við þá athöfn. Það verður auglýst nánar síðar.
Hafir þú fyrirspurnir eða vantar upplýsingar, vinsamlegast hafðu þá samband við skrifstofu FFA, sími 4622720 mánud.-fimmtud. kl. 13-17
og föstudaga 13-16 fram til 1. september eða sendu tölvupóst á
ffa@ffa.is
Gönguleikur fyrir fullorðna
Ef þú ferð á
fimm stöðvar, svarar leyniorðunum rétt, gatar svarblaðið og skilar því til FFA, þá áttu möguleika á vinningi.
| Nr | Dagsetning | Dagur | Kl | Ferð |
|---|---|---|---|---|
| 1 | 19. maí | Þriðjudagur | 18 - 22 | Fyrsta ferð - byrjum létt |
| 2 | 25. maí | Mánudagur | 8 - 16 | Annar í hvítasunnu |
| 3 | 31. maí | Sunnudagur | 8 - 16 | |
| 4 | 2. júní | Þriðjudagur | 18 - 22 | |
| 5 | 7. júní | Sunnudagur | 8 - 16 | |
| 6 | 9. júní | Þriðjudagur | 18 - 22 | |
| 7 | 16. júní | Þriðjudagur | 18 - 22 | |
| 8 | 21. júní | Sunnudagur | 8 - 16 | Illagilsfjall og Nautárhnjúkur (3 skór) / Sjósund og pottar á Hauganesi |
Leyniorðin í leik fullorðinna finnur þú á þessum stöðum:
Kaldbakur
(ATH. þó nokkur snjór er á leiðinni og því æskilegt að fara síðar í sumar)
kort
-
lýsing
á leiðinni
Kræðufell
kort
-
lýsing
á leiðinni
Staðartunguháls
kort-
lýsing
á leiðinni
Steinbrú í Þingmannavegi
(á Vaðlaheiði)
kort
-
lýsing
á leiðinni
Stórihnjúkur
kort
-
lýsing
á leiðinni
GPS punktar fyrir stöðvarnar:
Sumir staðirnir eru ekki nákvæmlega skilgreindir þannig að það gæti verið einhver ónákvæmni í tölunum sem gefnar eru upp í töflunni. Hnitin miðast við sjálfan ákvörðunarstaðinn ekki leiðina. Ath. að þegar áfangastaðurinn er sýnilegur á GPS-tækinu í göngunni verður líka að taka mið af landslaginu og slóðinni í dimmviðri.

Gönguleikur fyrir krakka yngri en 12 ára
Ef þú ferð á
þrjár stöðvar, leysir þrautirnar sem eru á staðnum, gatar svarblaðið og skilar því til FFA, getur þú átt möguleika á vinningi.
Ef þú ferð á
fjórar stöðvar þá færðu vinning.
Allir þátttakendur í leik fyrir krakka fá viðurkenningarskjal.
Í leiknum fyrir krakka er þraut á þessum stöðum:
Fálkafell
kort
-
lýsing
á leiðinni
Krossanesborgir - Fuglahúsið
kort -
lýsing
á leiðinni
Staðartunguháls
Steinmenn
GPS punktar fyrir stöðvarnar:
Sumir staðirnir eru ekki nákvæmlega skilgreindir þannig að það gæti verið einhver ónákvæmni í tölunum sem gefnar eru upp í töflunni. Hnitin miðast við sjálfan ákvörðunarstaðinn ekki leiðina. Ath. að þegar áfangastaðurinn er sýnilegur á GPS-tækinu í göngunni verður líka að taka mið af landslaginu og slóðinni í dimmviðri.


