Núvitund í náttúrunni

Núvitund í náttúrunni

Aflýst vegna þess hve göngufæri er erfitt fyrir þessa tegnund af verkefni.

Verkefnið Núvitund í náttúrunni er liður í að auka fjölbreytni í starfi Ferðafélags Akureyrar. Í núvitund er athyglinni beint meðvitað að því sem á sér stað - að vera með því sem er, eins og það er - án þess að reyna að breyta, stýra eða dæma.

Farið verður í léttar gönguferðir þar sem þátttakendur eru leiddir í gegnum núvitundar­æfingar úti í náttúrunni. Hughrifin af umhverfinu eru efld með því að beina sjónum að landslagi og náttúrunni, hlusta á hljóðin í náttúrunni, finna lykt í loftinu, bragð í munni og snertingu við jörðina. Um er að ræða fimm skipti á tímabilinu 13. apríl til 4. maí, fræðsla ásamt styttri og lengri ferðum.

Sjá nánar á síðu verkefnisins