Fjöll, firðir og dalir með Ásdísi og Sirrý

Fjöll, firðir og dalir með Ásdísi og Sirrý 2024

SKRÁNING

Fjögurra vikna gönguverkefni (átta ferðir) sem styrkir líkama og sál. Nærandi gönguferðir með það í huga að njóta náttúrunnar í góðum félagsskap.

Fyrirhugað er að fara í fjórar kvöldgöngur og fjórar lengri göngur (dagsgöngur).

Kvöldgöngurnar verða á þriðjudögum, tímasetningar frá kl. 17:30 / 18.:0- 22:00 (tíminn fer eftir leiðarvali hverju sinni). Dagsgöngur verða ýmist á laugardögum eða sunnudögum, tímasetning frá kl. 8:00/9:00 - 16:00/17:00 (tíminn fer eftir leiðarvali hverju sinni). Farið er á einkabílum.

Verkefnið „Fjöll, firðir og dalir með Ásdísi og Sirrý er fyrir alla sem eru í þokkalegu gönguformi og miðast erfiðleikastig og gönguhraði ferða við tvo til þrjá skó.

Dagskrána er hægt að sjá hér

Umsjón með verkefninu hafa Ásdís Skúladóttir og Sigurbjörg Rún Jónsdóttir (Sirrý). Alltaf verða tveir fararstjórar. Vel verður haldið utan um hópinn með öruggri fararstjórn, face­bókarsíðu og góðri upplýsingagjöf.

Lágmarksfjöldi er 12 manns.

Verð: 29.000 kr. fyrir félaga í FFA og FÍ. Makar félagsmanna greiða sömu upphæð. Fyrir utan­félagsmenn kostar námskeiðið 34.000 kr. Greiða þarf þegar skráningu lýkur, krafa verður stofnuð í netbanka.

Skráningu lýkur 16. maí.

SKRÁNING

Mikilvægt:

Ekki er endurgreitt eftir að verkefni eða námskeið er hafið.

Í verkefnum og ferðum FFA ferðast þátttakendur á eigin ábyrgð. FFA tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra og hvetur fólk til að kynna sér eigin heimilistryggingar eða kaupa ferða- og slysatryggingu.

Hagstætt er að gerast félagi í FFA. Með félagsskírteini FFA fæst afsláttur í mörgum sportvöruverslunum auk afsláttar í ferðir, verkefni og gistingu í skálum hjá FFA og FÍ, sjá nánar: Gerast félagi í FFA, þar getið þið skráð ykkur í félagið.