Afmælispistlar vegna 90 ára afmælis FFA
4. apríl 2026

Pistlar - Af tilefni 90 ára afmælis FFA

Ferðafélag Akureyrar (FFA) var stofnað árið 1936 og verður 90 ára þann 8. apríl næstkomandi. Haldið verður upp á tímamótin með ýmsum hætti, svo sem fyrirlestrum (á Amtsbókasafninu 8. apríl kl. 17), skráningu gönguleiða, afmæliskaffi í skála félagsins í Drekagili næstkomandi sumar – og pistlum á akureyri.net


Við erum stolt af þessu afmælisbarni sem ber aldurinn einkar vel og hefur eflst og styrktst með hverju árinu. Í gegnum félagið hefur fólk bundist tryggðarböndum fyrir lífstíð, notið endurnærandi ferðalaga um landið og öðlast þekkingu á landinu okkar.


Hér fyrir neðan eru tenglar á þessa áhugaverðu pistla:

6. febrúar 2026: Sögubrot af 90 árum Ferðafélags Akureyrar

21. febrúar 2026: Smíði og flutningur Lamba á Glerárdal

7. mars 2026: Bræðrafell - skáli FFA í Ódáðahrauni

21. mars 2026: Haldið á brattann

4. apríl 2026: Grettistaki lyft í áratuganna rás