Lýsing

Dagskrá ferðarinnar:

1. d., föstudagur: Gengið inn að Lamba. Eldað og borðað. Frjáls tími og fólk kemur kemur sér fyrir. Leidd slökun, yoga nidra.

2. d., laugardagur: Leidd morgunhreyfing jóga og hugleiðsla. Morgunmatur og kaffi. Létt ganga, 4-5 km ganga þar sem ,,gengið” er um sögu jarðarinnar. Samtal um  vistheimspeki (deep ecology) endurgjöf og endurnýjun í náttúrunni. Hádegismatur. 

Leidd slökun (annað hvort inni eða úti). Skynjunarganga þar sem við upplifum náttúruna út frá ólíkum skynfærum, hljóð, bragð, heyrn, snerting og sjón. Kaffi/kakó/te úti. Skapandi tími /frjáls tími. Sameiginlegur kvöldmatur. Kvöldvaka og sögustund.

3. d., sunnudagur: Leidd morgunhreyfing og hugleiðsla. Morgunmatur og kaffi. Loka hringur og umræður. Pakkað saman. Gengið til baka. 

Gert ráð fyrir að koma á bílastæðið um kl. 16.


Verð: 23.000/26.000 kr. Innifalið: Gisting í tvær nætur og fararstjórn. Sameiginlegur kvöldmatur greiðist sérstaklega. Fararstjórar sjá um að kaupa inn.

Greiða þarf staðfestingargjald vegna skráningar í þessa ferð kr. 10.000 í síðasta lagi 14 dögum eftir að krafa er stofnuð í netbanka. 

Þessa ferð þarf síðan að greiða að fullu þremur dögum fyrir brottför. Krafa verður stofnuð í netbanka.


Glerárdalur



Hnappur virkar aðeins á dýnamískum síðum
Skráning í ferðina

Búnaður

  • Lengri ferðir: Göngu- og skíðaferðir - 2 skór

    Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst., oftast utan slóða og /eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.

    Í nokkurra daga ferð reynir oft meira á úthald hjá fólki en í dagsferðum.


    Viðbót við grunn-búnaðarlista fyrir 2 skó. Sjá grunnlista hér.

    ATH. Fararstjóri tekur fram ef annan búnað þarf


    Í lengri ferðir (1 - 4 dagar) þarf auk grunnbúnaðar:

    Gönguskór sem henta aðstæðum og veita góðan stuðning

    Bakpoki: Stærri bakpoki ef gengið er með allt á bakinu annars dagspoki. Bakpokinn þarf að vera með bakpokahlíf

    Inniskór ef gist er í fjallaskálum

    Svefnpoki (og lítill koddi)

    Fatnaður sem bæta þarf við: Nærföt til skiptanna, sokkar, millilag og auka föt ef fólk blotnar

    Lítið viðgerðasett (nál, tvinni, lítil skæri)

    Nauðsynlegar snyrtivörur og eyrnatappa

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)

    Matur og hæfilegt magn af orkuríku nesti og drykkjum (eftir lengd, aðstæðum og fyrirkomulagi ferðar)

    Kort, áttaviti, GPS tæki


    Í vetrarferðir (göngu- eða skíðaferðum) þarf auk grunnbúnaðar:

    Utanbrautarskíði með stálköntum (skinn á skíðin)

    Hlífðargleraugu

    Brodda og ísexi (ef leið liggur um brattlendi)

    Hlýrri fatnað en að jafnaði í sumarferðum: Ullarnærföt, ullarhúfa, ullarvettlingar og vindhelt ysta lag (buxur, jakki og lúffur) eru nauðsynlegur búnaður

    Orkumikið nesti og nóg að drekka (heitt og kalt í ílátum sem ekki frýs