DAGS

11.08.2026

Kl.

18-23

BROTTFÖR Kl.

18 frá Súlubílastæðinu

Lýsing

Ákveðið hefur verið að fara ferðina 11. ágúst. Mæting á Súlubílastæðið. Ekki þarf að skrá sig í ferðina. Þeir sem vilja geta mætt við skrifstofu FFA, Strandgötu 23, þar sem hægt er að safnast saman í bíla. Lagt af stað þaðan kl. 17:30

Brottför kl. 18  frá Súlubílastæðinu.

Fararstjórn: Gunnar Már Gunnarsson


Ferð á bæjarfjall Akureyrar í tilefni 90 ára afmælis FFA.


Gengið er eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið. Af Súlum er afar fallegt útsýni. 

Göngubúnaður miðast við færi og aðstæður en þátttakendur er beðnir um að koma í svolitlum sparifatnaði eins og hægt verður miðað við aðstæður. Einnig eru þeir beðnir um að leggja eitthvað smávegis til í Pálínuboð þegar upp er komið en lagður verður út dúkur fyrir veitingar.


Vegalengd (báðar leiðir): 11–12 km. Gönguhækkun: 880 m. Sama leið farin til baka.


Þátttaka er ókeypis. Engin skráning.





Búnaður

  • Gönguferðir: 2 skór

    Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.


    Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:

    Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi

    Göngustafir ef vill

    Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf

    Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi

    Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt

    Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)

    Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.