Enn er hægt að skrá sig á fjallaskíðanámskeið hjá FFA
8. janúar 2022

Fjallaskíðanámskeiðið verður í tvennu lagi; byggt upp sem stutt námskeið og æfingar í byrjun og endar á lengri ferðum.  Hægt er að skrá sig í hvort sem er annað námskeiðið eða bæði.

Fjallaskíðanámskeið I:  Hefst 20. janúar og er fram í febrúar. Það byggist upp á góðum undirbúningsfundi, fjórum æfingum og einni lengri ferð.

Fjallaskíðanámskeið II : Hefst 10. mars og er fram í apríl. Það byggist upp á fimm lengri ferðum.

Umsjón með verkefninu og fararstjórar eru  Kristín Irene Valdemarsdóttir  og  Jón Marinó Sævarsson.

Skráningu á fyrra námskeiðið lýkur 12. janúar . Nánari upplýsingar og skráning hér.