Komdu með í útivist hjá FFA
6. apríl 2022

Ertu alltaf á leiðinni að hefja útivist og (fjall) göngur en kemur þér ekki af stað? Þá er þetta eitthvað fyrir þig. Stutt námskeið sem allir geta tekið þátt í og kemur fólki af stað. 

Verkefnið hefst 26. apríl og því lýkur 21. maí. 
Umsjón með verkefninu hafa  Anna Sigrún Rafnsdóttir  og  Kristján Hreinsson  og eru þau jafnframt fararstjórar í ferðunum. Fyrirspurnum er hægt að beina til Önnu Sigrúnar á netfangið annasr45@gmail.com eða í síma 848 1090. Fyrirspurnir er einnig hægt að senda á netfangið formadur@ffa.is

Skráningu lýkur 19. apríl  og verkefnið hefst 26. apríl. Nánari upplýsingar eru  hér ásamt dagskrá .