Næsta ferð 24. apríl: Jógaferð í Garðsárdal
19. apríl 2021

Jógaferð í Garðsárdal
Nýtt
Brottför kl. 13
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Þuríður Helga Kristjánsdóttir
og Tinna Sif Sigurðardóttir
Þátttaka ókeypis.
Ekið fram í Garðsárdal. Létt ganga um Garðsárreit þar sem þátttakendur nota skilningarvitin til að dýpka upplifun sína af náttúrunni. Gangan fer að mestu fram í kyrrð þar sem tækifæri er veitt til að rækta sál og líkama í fallegri náttúru Eyjafjarðar með gönguhugleiðslu ásamt núvitundar- og öndunaræfingum. Ferð við flestra hæfi.
Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur og huga að persónulegum sóttvörnum. Munið að skrá ykkur hér
