Þórhallur Guðmundsson lærði sjúkraþjálfun í Danmörku og hefur frá útskrift unnið þar, á Grænlandi og á Eflingu Akureyri. Hans helstu áhugamál innan sjúkraþjálfunar er bekkjameðferð, hlaupastílsgreining og krónískir skjólstæðingar með þolinmæði fyrir löngum sögum af venslafólki hans sjálfs.


Þórhallur hefur tekið að sér vinnustaðaúttektir og námskeið í líkamsbeytingu og vinnuvistfræði við góðar undirtektir enda er hans helsta áhugamál að tala ótruflað í langan tíma. Hann sinnir hestamennsku, utanvegahlaupum og óbyggðagöngum af stöðugleika, en önnur áhugamál eru meðal annars skyrgerð, mjöðbruggun, sveifludans, jarðaberjaræktun, jassballet og það að ljúga að börnum (t.d. að hann hafi gómað dreka í íþróttatöskuna sína og hann þori ekki að hleypa honum út eða að hann hafi stolið gullpening af brjáluðum sjóræningja sem sé að leita að honum).


Þórhallur er vænsta grey sem flestum líkar vel við og í daglegu tali svarar hann gælunafninu Tóti.