Tökum skrefið

Tökum skrefið er gönguverkefni hjá Ferðafélagi Akureyrar sem hófst 5. maí 2019


Allir eru velkomnir hvort sem þeir eru félagar í FFA eða ekki


Engin skráning - ekkert þátttökugjald.

  • Miðað er við að ganga allt árið
  • Gengið er á sunnudags­morgnum í eina klukkustund innan Akureyrar eða í nágrenni bæjarins
  • Viðmið um hraða göngunnar er að ganga 3 - 5 km á einni klukkustund
  • Gangan hefst við húsnæði FFA, Strandgötu 23. Þegar farið er lengra sameinast fólk í einkabíla
  • Eftir hverja göngu fær fólk sér kaffi og meðlæti í húsnæði FFA við Strandgötu. Þar myndast mjög skemmtileg stemmning og líflegar umræður


2019 var fyrsta árið sem verkefnið var. Göngurnar urðu alls 30 og mættu að meðaltali 20 manns í hverja göngu eða alls 623.


Á Covid-árinu 2020 þurfti að taka nokkur hlé auk þess sem ekki var hægt að bjóða upp á kaffi í nokkuð mörg skipti. Göngurnar lögðust alveg niður í lok október. Göngurnar urðu alls 32 og í þær mættu alls 442 manns.


2021 var byrjað fyrr en venjulega, eða 17. janúar. Þátttaka var góð það ár og urðu göngurnar 42 og mættu í þær alls 538 manns.


2022 var haldið áfram með svipuðum hætti. Fyrsta ganga ársins var 6. febrúar og lauk þeim síðasta sunnudag í nóvember. Göngurnar urðu 39 það ár og þátttakendur alls 438.


2023 var fyrsta gangan 5. febrúar og sú síðasta var 26. nóvember. Farin var 41 ganga með samtals 576 þátttakendum. Óskir voru um að halda lengur áfram á næsta ári. 


2024 var fyrsta gangan 4. febrúar og sú síðasta 15. desember. Göngurnar urðu alls 43 og þátttakendur voru 681. 


2025 var fyrsta gangan 12. janúar og sú síðasta 14. desember. Farnar voru 49 göngur og þátttakendur voru alls 753.


2026 var fyrsta gangan 11. janúar.