Lýsing

Illugastaðir (brúin) -Sörlastaðir á föstudaginn langa

2-3 skór 


Brottför klr. 9 frá FFA, Strandgötu 23. 

Sameinast í bila ef vill. Þeir sem þiggja far taka þátt í ferðakostnaði, gerum ráð fyrir 2000 kr. á mann með göngunum.

Fararstjórn: Valur Magnússon og Kristín Björnsdóttir


Það tekur u.þ.b. 30 mín að keyra frá FFA að brúnni við Illugastaði, um göngin. Reynum að aka lengra en færð ræður.

Gönguleiðin er um 20 km, (2x10 km). Hækkun óveruleg. Það tekur um 3 klst. að ganga aðra leiðina þannig að þetta eru um 6 klst. á göngu.  Stoppað verður nokkrum sinnum á leiðinni.Þetta er skemmtileg og auðfarin leið í góðu færi. Fylgt verður veginum að mestu.


Stoppað verður í eyðibýlinu Sörlastöðum en það er í eigu hestamannafélagsins Léttis í Eyjafirði. Skynsamlegt er að hafa fljótandi rennslisáburð í pokanum og svo nesti og skjólfatnað, minnum á eitthvað heitt brúsa.


Verð 2.700 / 4.400 kr.

Greitt við brottför




Skráning í ferðina
Skráning í ferðina

Búnaður

  • Dagsferðir á gönguskíðum

    Nauðsynlegur búnaður í dagsferð á gönguskíðum:

    Gönguskíði og skíðaskór. Best er að hafa skíði með stálköntum/utanbrautarskíði

    Skíðastafi (athugið að ólin sé þannig að þið komist í þykkum vettlingum í hana)

    Gott að hafa meðferðis skinn á skíðin

    Skíðagleraugu, sólarvörn og varasalvi

    Vind- og vatnsheldan jakka

    Vind- og vatnsheldar buxur

    Ullarnærföt

    Hanska/vindhelda vettlinga

    Drykkjarflösku og smá orku til að narta í t.d. orkustykki (alltaf eitthvað heitt að drekka)

    Sólarvörn og varasalvi

    Gott að hafa höfuðljós í lengri ferðir

    Sjúkragögn, hælsærisplástur, verkjalyf og annað smálegt

    Sjúkragögn (hælsærisplástur og annað smálegt)

    Gott að hafa létta úlpu og þurra vettlinga (gott líka að hafa „pokavettlinga“ til að hafa yfir aðra). Margir hafa líka með sér þurra húfu