

Hnjúkar, Búkar og Dalsbotnar
19. maí - 21. júní 2026
Umsjón og fararstjórar:

Fyrirkomulag og ferðir
Erfitt er að setja nákvæmlega niður með löngum fyrirvara hvaða ferð hentar hverju sinni. Metið verður hverju sinni, eftir aðstæðum, hvaða ferð verður farin, veðurspá og önnur skilyrði stjórna því.
Farið verður í 4 dagsferðir og 4 kvöldferðir. Miðað er við að byrja rólega svo allir geti fundið sinn takt.
Kvöldganga:
• Hamrar – Gamli – Steinmenn (byrjum þetta létt)
• Hálshnjúkur, Vaglir
• Bíldsárskarð – Sölvagil
• Skuggabjargaskógur
• Fossá í Hörgárdal
• Miðvíkurfjall
Lengri ferðir:
• Mælifell í Skagafirði
• Sölvadalur / Kaffi og kökur í Jólagarðurinn
• Hreppsendasúlur, Lágheiði
• Illagilsfjall og Nautárhnjúkur (*þrír skór) / Sjósund og pottar, Hauganes
• Bangsahnjúkur (– Þverfjall – Vatnsendafjall)
• Myrkárdalur
• Elliði í Hjaltadal í Skagafirði
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Már Gunnarsson, sími 864 2051 eða netfang gunnarmarg@gmail.com
Þórhallur Guðmundsson; sími 869 7653 eða netfang tilberi@gmail.com
Þorgerður, formaður ferðanefndar, sími 692 6904 eða netfang tsferdanefndffa@gmail.com
Fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta dagsetningum ef
veðurspá er óhagstæð eða af öðrum ástæðum
sem ekki ræðst við!
Hnjúkar, Búkar og Dalsbotnar
"Hristum af okkur slenið og tökum fagnandi á móti nýju göngusumri"
Vorverkefni FFA að þessu sinni er „Hnjúkar, Búkar og Dalsbotnar“
19. maí til 21. júní 2026
Verkefnið byggist upp á átta ferðum, fjórum styttri ferðum og fjórum lengri sem allar styrkja líkama og sál.
Verkefnið er fyrir alla sem sem eru í þokkalegu gönguformi og miðast erfiðleikastig og gönguhraði ferða við tvo til þrjá skó. Byrjað verður rólega til að allir geti fundið sinn takt.
Umsjón með verkefninu hafa Gunnar Már Gunnarsson, formaður FFA, og Þórhallur Guðmundsson, sjúkraþjálfari. Alltaf verða tveir fararstjórar. Vel verður haldið utan um hópinn með öruggri fararstjórn, facebókarsíðu og góðri upplýsingagjöf.
Lágmarksfjöldi er 12 manns.
Verð: x kr. fyrir félaga í FFA og FÍ. Makar félagsmanna greiða sömu upphæð. Fyrir utanfélagsmenn kostar námskeiðið x kr. Greiða þarf þegar skráningu lýkur, krafa verður stofnuð í netbanka.
Skráningu lýkur 13. maí 2026.
Mikilvægt
Ekki er endurgreitt eftir að verkefnið er hafið.
Í verkefnum og ferðum FFA ferðast þátttakendur á eigin ábyrgð. FFA tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra og hvetur fólk til að kynna sér eigin heimilistryggingar eða kaupa ferða- og slysatryggingu.
Hagstætt er að gerast félagi í FFA. Með félagsskírteini FFA fæst afsláttur í mörgum sportvöruverslunum auk afsláttar í ferðir, verkefni og gistingu í skálum hjá FFA og FÍ, sjá nánar: Gerast félagi í FFA, þar getið þið skráð ykkur í félagið.
