Botni

Botni

Gistipláss:

16 manns

Staðsetning:

Hálendið

Gjaldskrá:

4.500 / 6.500 kr

GPS staðsetning: 65° 16.171'N, 17° 4.078'W

Hæð yfir sjávarmáli: 440

Aðgengi: Gangandi / Fjallahjól 4x4

Skálavörður: Nei

Staðsetning: Botni stendur um 650 m suð-suðaustan efstu upptaka Suðurár, byggður 1996. Þangað liggur fáfarin jeppaslóð frá Svartárkoti / Grænavatni um Dyngjufjalladal. Á svæðinu er mjög takmarkað símasamband. 


Lýsing á skála: Gistirými fyrir 16 manns í kojum, svefnpokapláss á dýnum. Kynding með gasofni og steinolíuvél, gashella og eldhúsáhöld. Vatn má fá úr vatnsaugum við tjarnir suðvestan skálans eða úr upptakalindum Suðurár. Kamar. Skálinn er öllum opinn en ætlast er til að göngufólk sitji fyrir um gistingu. Skálinn er ólæstur. Gestir þurfa að taka rusl með til byggða.


Gönguleiðir í umhverfi skálans: Gönguleið frá Dyngjufelli að skálanum (20-22 km) og þaðan um Suðurárbotna að Svartárkoti (15-16 km).

Aðstaða í/við skála:

Staðsetning lykla: Skrifstofa FFA

Símanúmer:+354 462 2720

Bóka skála