Herðubreiðarlindir - Þorsteinsskáli

Herðubreiðarlindir - Þorsteinsskáli

Gistipláss:

25 manns

Staðsetning:

Hálendið

Gjaldskrá:

6.500 / 9.500 kr.

GPS staðsetning: 65° 11.571'N, 16° 13.377'W

Hæð yfir sjávarmáli: 480 m

Aðgengi: Á jeppum

Skálavörður:

Staðsetning: Þorsteinsskáli er í Herðubreiðarlindum, um 4 km austan við þjóðarfjallið Herðubreið. Aka þarf yfir tvö vöð á leið úr Mývatnssveit í Herðubreiðarlindir, það stærra er yfir Lindaá sem rennur um Herðubreiðarlindir og krefst sérstakrar varúðar. Milli Herðubreiðarlinda og Drekagils er um 30 km akstursfjarlægð.


Lýsing á skála - aðstaða: Í Þorsteinsskála er gistirými fyrir 25 manns, svefnpokapláss á dýnum. Í eldhúsi eru áhöld, gashella og Sóló eldavél tengd við miðstöð. Snyrtihús er við skálann.


Gæsla: Skálavarsla er frá miðjum júní til ágúst loka. Einnig eru landverðir á svæðinu.


Athugið að skálinn er fullbókaður frá 13. júlí til 17. ágúst 2025.


Fjölskylduafsláttur í Herðubreiðarlindum sumarið 2025: Frítt fyrir börn að 18 ára aldri. 


Gott tjaldsvæði er í Herðubreiðarlindum, snyrtiaðstaða með sturtu. Sumarið 2023 var sett upp stórt tjald fyrir tjaldgesti þar sem þeir geta borðað nesti.


Gönguleiðir í umhverfi skálans: Merktar eru nokkrar léttar gönguleiðir um svæðið. Landverðir á svæðinu bjóða upp á daglegar fræðslugöngur í Herðubreiðarlindum yfir sumartímann. Hér má sjá góðar upplýsingar frá VJÞ um gönguleiðir og svæðið:  Askja og Herðubreiðarlindir


Byggingarsaga: Þorsteinsskáli var vígður árið 1960 en hann var áður skíðaskáli í eigu Barnaskóla Akureyrar og staðsettur við Miðhúsaklappir ofan bæjarins. Árið 1958 var skálinn tekinn niður spýtu fyrir spýtu og síðan reistur aftur í Herðubreiðarlindum. Undanfarin ár hefur skálinn verið mikið endurnýjaður, m.a. einangraður í hólf og gólf, skipt um glugga og hurðir, sett upp ný eldhúsinnrétting, ný Sóló eldavél, gashellur og fleira.


Umfjöllum á mbl.is um ævintýraheim Herðubreiðarlinda.


Umfjöllun Hringbrautar um Þorsteinsskála og Bræðrafell.

Aðstaða í/við skála:

Staðsetning lykla: Á staðnum

Símanúmer:+354 822-5191. Tetra: 641-0044.

Bóka skála