Jarðfræði Bræðrafells og nágrennis
DAGS
Kl.
BROTTFÖR Kl.
12
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services
-
Aðalsteinn Árnason
-
Anna Sigrún Rafnsdóttir
-
Arnar Bragason
-
Ásdís Skúladóttir
-
Birna Guðrún Baldursdóttir
-
Bryndís Inda Stefánsdóttir
-
Fjóla Kristín Helgadóttir
-
Grétar Grímsson
-
Gunnar Már Gunnarsson
-
Gyða Sjöfn Njálsdóttir
-
Halldór Halldórsson
-
Helga Sigfúsdóttir
-
Herdís Zophoníasdóttir
-
Hjalti Jóhannesson
-
Hjörvar Jóhannesson
-
Hugrún Sigmundsdóttir
-
Hulda Jónsdóttir
-
Ingibjörg Elín Jónasdóttir
-
Ingvar Teitsson
-
Jón Magnússon
-
Jón Marinó Ragnarsson
-
Jón Marinó Sævarsson
-
Konráð Gunnarsson
-
Kristín Irene Valdemarsdóttir
-
Kristján Hreinsson
-
Margrét Kristín Jónsdóttir
-
Ólafur Kjartansson
-
Ósk Helgadóttir
-
Ragnheiður Ragnarsdóttir
-
Selma S. Malmquist
-
Sigurbjörg Rún Jónsdóttir (Sirrý)
-
Sigurgeir Sigurðsson
-
Sigurveig Árnadóttir
-
Stefán Sigurðsson
-
Sunna Björk Ragnarsdóttir
-
Svavar A. Jónsson
-
Sverrir Thorstensen
-
Una Þórey Sigurðardóttir
-
Valur Magnússon
-
Þorgrímur G. Daníelsson
-
Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir
-
Þóroddur F. Þóroddsson
-
Þuríður Helga Kristjánsdóttir
-
-
Árni Arnsteinsson
-
Áslaugur Haddsson
-
Egill Freysteinsson
-
Guðlaugur B. Aðalsteinsson
-
Helga Guðnadóttir
-
Jóhannes Áslaugsson
-
Jónas Jónsson
-
Ottó Elíassson

Lýsing
14.–16. ágúst
Brottför kl. 12 frá FFA, Strandgötu 23. Farið er með rútu í Herðubreiðarlindir og þaðan fær hópurinn skutl að uppgöngunni á Herðubreið þar sem gangan hefst, eins verður á bakaleiðinni.
Fararstjórn: Fjóla K. Helgadóttir, Hjalti Jóhannesson og Sigurveig Árnadóttir jarðfræðingur
Ódáðahraun er mikið gósenland fyrir þá sem áhuga hafa á jarðfræði, því býður FFA upp á jarðfræðiferð þar sem Kollóttadyngja og svæðið þar í kring verður skoðað. Í sunnanverðu Ódáðahrauni við Bræðrafell í Kollóttudyngju á FFA nýlegan og vel búinn 16 manna gönguskála, þar sem gist verður í tvær nætur.
Í Ódáðahrauni er vatn af skornum skammti. Vatni er safnað af þaki skálans en þó er nauðsynlegt að taka a.m.k. tvo lítra af vatni á mann meðferðis til öryggis. Svæðið sem farið er um ber merki mikilla eldsumbrota. Það státar af sérkennilegum og fallegum hraunmyndunum, auðn, litadýrð og ekki síst mikilli kyrrð og mun jarðfræðingur sem er með í för fræða okkur um það sem fyrir augu ber.
Dagskrá ferðarinnar:
1.d., föstudagur: Lagt af stað frá Akureyri kl. 13.00. Ekið sem leið liggur í Herðubreiðarlindir þar sem stoppað verður í stutta stund. Eftir það ekið áfram sem leið liggur vestur fyrir Herðubreið eftur torfærum jeppaslóða og gengið þaðan um 7.5 km í vestur að Bræðrafelli. Gengið verðum yfir Flötudyngju, sem ber nafn með rentu. Þar er að sjá margar skemmtilegar jarðmyndanir og risastóra gíga. Skálinn er í 720 m h.y.s. og lítil sem engin hækkun.
2.d., laugardagur: Gengið á Kollóttudyngju (1.177 m) en þaðan er afar víðsýnt og Bræðrafell og ýmsar aðrar jarðmyndanir skoðaðar á bakaleiðinni. Hækkun um 500 m.
3.d., sunnudagur: Gengin sama leið til baka í átt að uppgöngunni á Herðubreið þar sem bílarnir bíða og aka ferðalöngum til Akureyrar. Áætlaður komutími til Akureyrar er kl. 16-17.
Hámarksfjöldi 12 manns.
Verð: 59.500 / 64.500 kr. Innifalið: Rúta og akstur frá Lindum að uppgöngunni á Herðubreið, gisting í tvær nætur, fararstjórn og fræðsla.
Greiða þarf staðfestingargjald vegna skráningar í þessa ferð kr. 10.000 kr. í síðasta lagi 14 dögum eftir að krafa er stofnuð í netbanka. Þessa ferð þarf síðan að greiða að fullu fyrirfram, þremur dögum fyrir brottför. Krafa verður stofnuð í netbanka.
Búnaður
Gönguferðir: 2 skór
Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi
Göngustafir ef vill
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.


