DAGS

09.05.2026

Kl.

9-16

BROTTFÖR Kl.

9

ERFIÐLEIKASTIG

Fararstjórn:

Lýsing

3 skór

9. maí, laugardagur

Brottför kl. 9  frá Súlubílastæðinu.

Fararstjórn: Gunnar Már Gunnarsson


Ferð á bæjarfjall Akureyrar í tilefni 90 ára afmælis FFA.


Gengið er eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið. Af Súlum er afar fallegt útsýni. 

Göngubúnaður miðast við færi og aðstæður en þátttakendur er beðnir um að koma í svolitlum sparifatnaði eins og hægt verður miðað við aðstæður. Einnig eru þeir beðnir um að leggja eitthvað smávegis til í Pálínuboð þegar upp er komið en lagður verður út dúkur fyrir veitingar.

ATH. að vetri til og snemma vors er ganga á Súlur erfiðari en að sumri til og er hún metin sem 3ja skóa ferð á þessum árstíma. 

Sama leið farin til baka.


Vegalengd (báðar leiðir): 11–12 km. Gönguhækkun: 880 m.


Þátttaka er ókeypis




Skráning í ferðina
Skráning í ferðina

Búnaður

  • Gönguferðir: 3-4 skór

    Erfiðar ferðir: Nokkuð langar dagleiðir, 6 - 8 klst. Gengið í fjalllendi og jafnvel lausum skriðum. Getur þurft að vaða erfiðar ár. Ef gist er þá er það oftast í húsum og þá þarf að bera svefnpoka.




    Mjög erfiðar ferðir: Erfiðar og langar dagleiðir yfir 10 klst. Gengið með allt á bakinu, oft í bröttu fjalllendi, lausum skriðum og stórgrýti. Búast má við erfiðum ám. Aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.


    ATH. Fararstjóri tekur fram ef annan búnað þarf


    Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:

    Gönguskór sem henta utan slóða og veita góðan stuðning

    Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf

    Göngustafir ef vill

    Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír

    Höfuðljós ef búast má við að ganga í myrkri

    Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, sokkar til skiptanna, húfa og vettlingar

    Vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða

    Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)

    Hæfilegt magn af orkuríku nesti og drykkjum (eftir lengd, aðstæðum og fyrirkomulagi ferðar)

    Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, buff og léttir broddar, viðgerðasett (nál, tvinni, lítil skæri), klemmur

    Kort, áttaviti, GPS tæki