Gönguvika: Þúfnagangur með Árna Arnsteinssyni
DAGS
Kl.
19-22
BROTTFÖR Kl.
19
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
22. júní, mánudagur
Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum þurfa að taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Árni Arnsteinsson
Árni frá Dunhaga býður fólki með sér í kvöldgöngu þar sem gengið verður frá Grjótgarði að Heiðarhúsum sem er gamalt eyðubýli.
Hann verður m.a. með einhvern fróðleik um fólk og staði á þessu svæði. Gangan tekur um 2 klukkustundir.
Vegalengd: 4–5 km. Gönguhækkun: um 100 m.
Þátttaka ókeypis
Búnaður
Gönguferðir: 1 skór
Léttar og stuttar ferðir: Stuttar dagleiðir, 4 - 6 klst. Mest gengið á sléttlendi. Engar eða litlar ár. Léttur dagpoki. Flestum fært.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir skór sem ætlaðir eru til dagsferða og jafnvel göngustafir.
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi, verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, húfa, vettlingar, hlífðarföt og regnföt
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar og buff

