Draflastaðafjall
DAGS
Kl.
10-14
BROTTFÖR Kl.
10
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
25. apríl, laugardagur
Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum þurfa að taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Hulda Jónsdóttir
Gengið frá bílastæði efst á Víkurskarði upp á fjallið, 734 m.
Gaman er að ganga inn á fjallið eða hring um það og njóta útsýnisins sem er víðáttumikið af fjallinu.
Vegalengd: 6–8 km. Gönguhækkun: 400m.
Þátttaka ókeypis
Búnaður
Gönguferðir: 2 skór
Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi
Göngustafir ef vill
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.

