Skíðaganga. Illugastaðir-Sörlastaðir
DAGS
Kl.
9 - 16
BROTTFÖR Kl.
9
ERFIÐLEIKASTIG

Lýsing
Illugastaðir (brúin) -Sörlastaðir á föstudaginn langa
2-3 skór
Brottför kl. 9 frá FFA, Strandgötu 23.
Sameinast í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far taka þátt í ferðakostnaði, gerum ráð fyrir 2000 kr. á mann með göngunum.
Fararstjórn: Valur Magnússon og Kristín Björnsdóttir
Það tekur u.þ.b. 30 mín að keyra frá FFA að brúnni við Illugastaði, um göngin. Reynum að aka lengra en færð ræður.
Gönguleiðin er um 20 km, (2x10 km). Hækkun óveruleg. Það tekur um 3 klst. að ganga aðra leiðina þannig að þetta eru um 6 klst. á göngu. Stoppað verður nokkrum sinnum á leiðinni.Þetta er skemmtileg og auðfarin leið í góðu færi. Fylgt verður veginum að mestu.
Stoppað verður í eyðibýlinu Sörlastöðum en það er í eigu hestamannafélagsins Léttis í Eyjafirði. Skynsamlegt er að hafa fljótandi rennslisáburð í pokanum og svo nesti og skjólfatnað, minnum á eitthvað heitt brúsa.
Lágmark 8 manns svo ferðin verði farin.
Verð 2.700 / 4.400 kr.
Greitt við brottför
Búnaður
Dagsferðir á gönguskíðum
Nauðsynlegur búnaður í dagsferð á gönguskíðum:
Gönguskíði og skíðaskór. Best er að hafa skíði með stálköntum/utanbrautarskíði
Skíðastafi (athugið að ólin sé þannig að þið komist í þykkum vettlingum í hana)
Gott að hafa meðferðis skinn á skíðin
Skíðagleraugu, sólarvörn og varasalvi
Vind- og vatnsheldan jakka
Vind- og vatnsheldar buxur
Ullarnærföt
Hanska/vindhelda vettlinga
Drykkjarflösku og smá orku til að narta í t.d. orkustykki (alltaf eitthvað heitt að drekka)
Sólarvörn og varasalvi
Gott að hafa höfuðljós í lengri ferðir
Sjúkragögn, hælsærisplástur, verkjalyf og annað smálegt
Sjúkragögn (hælsærisplástur og annað smálegt)
Gott að hafa létta úlpu og þurra vettlinga (gott líka að hafa „pokavettlinga“ til að hafa yfir aðra). Margir hafa líka með sér þurra húfu




