Skíðaganga Fljótsheiði. Einbúi-Heiðarsel-Rauðá-Fosshóll
DAGS
Kl.
9-17
BROTTFÖR Kl.
9
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
2-3 skór
Brottför kl. 9 frá FFA, Strandgötu 23.
Sameinast í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far taka þátt í ferðakostnaði, gerum ráð fyrir 2500 kr. á mann með göngunum.
Fararstjórn: Þóroddur F. Þóroddsson
Það tekur u.þ.b. 30 mín að keyra frá FFA að Fosshóli þar sem skilinn verður eftir a.m.k. einn bíll og svo ekið að línuvegi sunnan við Kálfborgarána og þar hefst gangan.
Gönguleiðin er um 15 km. Hækkun 150-200 m. Gert er ráð fyrir um 2-3 klst. göngu að Heiðarseli, 4 km og 150 m hækkun og síðan gengið um sléttar mýrar og ása norðurundir þjóðveg (8 km) og þaðan undan halla sunnan Rauðár niður að Fosshóli. Stefnt er að hámarki 6-7 klst. skíðagöngu.
Stoppað verður nokkrum sinnum á leiðinni en annars gengið greiðlega eins og færi býður upp á. Þetta er auðfarin leið í góðu færi en ef fyrirsjánlegt verður að of langan tíma taki að ná að Fosshóli er hugsanlegt að fara fyrr niður á þjóðveg og eins ef skíðafæri er mjög gott er hægt að bæta við fleiri km.
Nauðsynlegt að vera á skíðum með með stálkömntum. Skynsamlegt er að hafa fljótandi rennslisáburð í pokanum og svo nesti og skjólfatnað, minnt á eitthvað heitt í brúsa og setmottu.
Lámarksfjöldi eru 8 manns svo ferðin verði farin.
Verð: 2.700 / 4.400 kr.
Greitt við brottför
Búnaður
Dagsferðir á gönguskíðum
Nauðsynlegur búnaður í dagsferð á gönguskíðum:
Gönguskíði og skíðaskór. Best er að hafa skíði með stálköntum/utanbrautarskíði
Skíðastafi (athugið að ólin sé þannig að þið komist í þykkum vettlingum í hana)
Gott að hafa meðferðis skinn á skíðin
Skíðagleraugu, sólarvörn og varasalvi
Vind- og vatnsheldan jakka
Vind- og vatnsheldar buxur
Ullarnærföt
Hanska/vindhelda vettlinga
Drykkjarflösku og smá orku til að narta í t.d. orkustykki (alltaf eitthvað heitt að drekka)
Sólarvörn og varasalvi
Gott að hafa höfuðljós í lengri ferðir
Sjúkragögn, hælsærisplástur, verkjalyf og annað smálegt
Sjúkragögn (hælsærisplástur og annað smálegt)
Gott að hafa létta úlpu og þurra vettlinga (gott líka að hafa „pokavettlinga“ til að hafa yfir aðra). Margir hafa líka með sér þurra húfu

