Fremstafell – Barnafoss – Barnafell – Fellsskógur
DAGS
Kl.
9-16
BROTTFÖR Kl.
9
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
13. júní, laugardagur
Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum þurfa að taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Jónas Jónsson
Ekið að Fremstafelli í Kinn. Þaðan er gengið að Barnafossi og haldið svo áfram eftir skógarstíg meðfram Skjálfandafljóti.
Gengið aðeins upp í Fellið og svo samhliða því alveg að norðurenda þess. Síðan er gengið að Ljósvetningabúð þar sem bílarnir voru skildir eftir.
Ef vel viðrar verður gengið upp á Ytri-Hnjúkinn. Heyrum sögur af svæðinu auk þess að virða fyrir okkur stórkostlegt útsýnið en frá Kinnarfelli er
mikið útsýni í allar áttir. Horfum yfir Skjálfandafljót og sjáum m.a. Ullarfoss.
Ekkert drykkjarvatn er á leiðinni. Selflytja þarf bíla á milli Fremstafells og Ljósvetningabúðar.
Ef veður og útsýni er gott kemur vel til greina að sleppa bílaskutli og ganga til baka suður Fellið til Fremstafells.
Vegalengd: 12–13 km. Gönguhækkun: 250–300 m.
Verð: 2.700 / 4.400 kr. Innifalið: Fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.
Búnaður
Gönguferðir: 2 skór
Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi
Göngustafir ef vill
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.

