Gönguvika: Fossaferð í Eyjafirði
DAGS
Kl.
19-22
BROTTFÖR Kl.
19
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
26. júní, föstudagur
Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum þurfa að taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Svavar A. Jónsson
Svavar leiðir göngu um Þverárgil í Eyjafirði þar sem hægt er að sjá nokkra fallega fossa þar á meðal Litla Goðafoss.
Ferðin tekur 2–3 tíma og er einhver hækkun upp með gilinu til að sjá fossana. Gert er ráð fyrir að koma til baka um kl. 22.
Þátttaka ókeypis
Búnaður
Gönguferðir: 1 skór
Léttar og stuttar ferðir: Stuttar dagleiðir, 4 - 6 klst. Mest gengið á sléttlendi. Engar eða litlar ár. Léttur dagpoki. Flestum fært.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir skór sem ætlaðir eru til dagsferða og jafnvel göngustafir.
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi, verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, húfa, vettlingar, hlífðarföt og regnföt
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar og buff

