Gönguvika: Heimsókn til Hörgs í Baugasel
DAGS
Kl.
BROTTFÖR Kl.
kl. 19 frá Bug í Hörgárdal
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services

Lýsing
Brottför kl. 18:30 frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill.
Einnig er hægt að mæta beint að Bugi í Hörgárdal en þaðan er lagt af stað kl. 19
Við ætlum að gleðjast með Ferðafélaginu Hörgi í Hörgárdal í tilefni af 45 ára afmæli félagsins en þau verða með Jónsmessuhátíð í Baugaseli í anda gamallar hefðar félagsins. Tónlist, veitingar, skemmtiatriði o.fl.
Frí ferð og engin skráning.
Búnaður
Gönguferðir: 1 skór
Léttar og stuttar ferðir: Stuttar dagleiðir, 4 - 6 klst. Mest gengið á sléttlendi. Engar eða litlar ár. Léttur dagpoki. Flestum fært.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir skór sem ætlaðir eru til dagsferða og jafnvel göngustafir.
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi, verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, húfa, vettlingar, hlífðarföt og regnföt
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar og buff

