Gönguvika. Miðnæturganga á Miðvíkurfjall
DAGS
Kl.
22-01
BROTTFÖR Kl.
22
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
21. júní, sunnudagur
Brottför kl. 22 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum þurfa að taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Hulda Jónsdóttir
Miðvíkurfjall (560 m hátt). Ekið er áleiðis upp í Víkurskarð og bílum lagt á lítið bílastæði sem þar er. Þaðan er gengið upp hlíðina meðfram læknum
og stefnan tekin á hnjúkinn. Fallegt útsýni er yfir Eyjafjörðinn vestanverðan og út til hafsins. Ljúft að njóta fallegra síðkvölda á þessu fjalli.
Sama leið farin til baka.
Vegalengd alls um 4 km. Gönguhækkun er 320 m.
Þátttaka ókeypis
Búnaður
Gönguferðir: 2 skór
Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi
Göngustafir ef vill
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.

