Skíðaganga. Nágrenni Kröflu í Mývatnssveit
DAGS
Kl.
9-16/17
BROTTFÖR Kl.
9
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
31. janúar 2026, laugardagur
Brottför kl. 9 frá FFA, Strandgötu 23, sameinast í bíla.
Fararstjórn: Þóroddur F. Þóroddsson
Fyrsta skíðagönguferð FFA 2026 er fyrirhuguð um nágrenni Kröflu í Mývatnssveit.
Nægur snjór var á svæðinu síðastliðinn laugardag, nokkuð hart færi, engin svell og auðvelt að fara um á skíðum með stálköntum, landslag tiltölulega flatt og engar erfiðar brekkur.
Sameinast í bíla frá FFA og frá bílastæði við Kröflustöð kl 10:30 komið í bíla aftur ekki síðar en kl 15-15:30.
Þátttaka ókeypis
Búnaður
Dagsferðir á gönguskíðum
Nauðsynlegur búnaður í dagsferð á gönguskíðum:
Gönguskíði og skíðaskór. Best er að hafa skíði með stálköntum/utanbrautarskíði
Skíðastafi (athugið að ólin sé þannig að þið komist í þykkum vettlingum í hana)
Gott að hafa meðferðis skinn á skíðin
Skíðagleraugu, sólarvörn og varasalvi
Vind- og vatnsheldan jakka
Vind- og vatnsheldar buxur
Ullarnærföt
Hanska/vindhelda vettlinga
Drykkjarflösku og smá orku til að narta í t.d. orkustykki (alltaf eitthvað heitt að drekka)
Sólarvörn og varasalvi
Gott að hafa höfuðljós í lengri ferðir
Sjúkragögn, hælsærisplástur, verkjalyf og annað smálegt
Sjúkragögn (hælsærisplástur og annað smálegt)
Gott að hafa létta úlpu og þurra vettlinga (gott líka að hafa „pokavettlinga“ til að hafa yfir aðra). Margir hafa líka með sér þurra húfu

