Skuggabjargaskógur: Rafhjólaferð á fjallahjóli
DAGS
Kl.
8-13
BROTTFÖR Kl.
8
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
19. júlí, sunnudagur
Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum þurfa að taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Jón M. Ragnarsson og Stefán Sigurðsson
Ekið að námunni við Víkurskarð og hjólað norður að Draflastöðum. Áfram er haldið í gegnum Melaskóg og Skuggabjargaskóg, um Dalsmynni
og meðfram Fnjóská að brúnni. Síðan er hjólaður stuttur spotti á þjóðveginum á byrjunarreit og haldið heim.
Þeir sem eiga flutningsfestingu fyrir hjól nota hana, aðrir geta fengið hjólin flutt á hjólakerru.
Gert ráð fyrir að hjólað sé í þrjár klukkustundir en ferðin verði fjórar klukkustundir með stoppum og nestispásu, síðan bætist bílferðin við.
Vegalengd: 40–45 km. Hækkun er viðráðanleg á þessari leið
Verð: 6.200 / 7.700 kr. Innifalið: Fararstjórn og flutningur á hjólum á hjólakerru fyrir þá sem þurfa.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.
Búnaður
Hjólaferðir
Nauðsynlegur búnaður í dagsferð á fjallahjóli t.d. rafhjólaferðir hjá FFA:

