Fréttir og tilkynningar

17. febrúar 2026
Aðalfundur Ferðafélags Akureyrar verður haldinn í sal Lions Skipagötu 14, 4. hæð, mánudaginn 2. mars kl. 20:00 Dagskrá: Skýrsla stjórnar lögð fram Reikningar lagðir fram til samþykktar Tilllögur til lagabreytinga Kosning stjórnar, skoðunarmanna reikninga, skjalavarðar og nefnda skv. 4. og 6. gr. Önnur mál Hressing í hléi! Félagar eru hvattir til að mæta og kynna sér starf FFA
10. febrúar 2026
Ferðfélag Akureyrar 90 ára afmæli
10. febrúar 2026
Þið sem eruð áhugasöm um skíðagönguferðir! Fylgist með á samfélagsmiðlum ef þið hafið áhuga á skíðagönguferðum með FFA á næstunni. Skíðaráð fylgist með snjóalögum og reynir eftir megni að setja af stað ferðir. Það er ekki víst að þá náist alltaf að setja þær á póstlista og því um að gera að fylgjast með á heimasíðu FFA og á facebooksíðu FFA. Framhaldsnámskeiðinu á utanbrautarskíðum hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna snjóleysis. Hér verður hægt að sjá þær þegar þær koma inn á heimasíðuna
28. janúar 2026
Skíðaganga. Nágrenni Kröflu í Mývatnssveit
21. janúar 2026
Ferðafélag Akureyrar óskar eftir fólki ! Í stjórn félagsins Í nefndir félagsins Félagskjörna skoðunarmenn reikninga Hafa samband við: Hjalta Jóhannesson Sími 821-1297 hjalti.johannesson@gmail.com
15. janúar 2026
Kynning á skíðaferðum FFA veturinn 2026
8. janúar 2026
Tvö skíðagöngunámskeið á utanbrautarskíðum með FFA Tvö skíðagöngunámskeið verða hjá FFA í byrjun árs 2026, grunnnámskeið og framhaldsnámskeið. Grunnnámskeið á utanbrautarskíðum: Ef þú ert byrjandi á utanbrautargönguskíðum (ferðaskíði með stálköntum) og langar að fara í skíða­gönguferðir t.d. með Ferðafélagi Akureyrar þá er þetta námskeið fyrir þig. Námskeiðið er fimm skipti og verður farið í grunntækni á utanbrautarskíðum, klæðnað og útbúnað fyrir lengri og styttri ferðir. Framhaldsnámskeið á utanbrautarskíðum: Þátttakendur þurfa að hafa einhverja reynslu af því að skíða á utanbrautargönguskíðum (ferðaskíði með stálköntum), geta beitt þeim og skíðað í þrjár til fjórar klukkustundir.
8. janúar 2026
Opið hús mánudaginn 12. janúar kl. 20 Opið hús verður mánudaginn 12. janúar kl. 20 í húsnæði FFA að Strandgötu 23. Þá ætlar Nína Ólafsdóttir að segja frá fyrstu bókinni sinni „Þú sem ert á jörðu“ sem kom út fyrir jólin og spjalla við þá sem mæta um bókina. Það verður gaman að heyra í henni hvort sem við erum búin að lesa bókina eða ekki. Allir velkomnir. Kaffi og konfekt, spjall og spurningar. Fjölmennið meðan húsrúm leyfir.  Viðburðanefnd
6. janúar 2026
Af félagsfundi FFA 2026