Covid-19: Skála- og tjaldgisting 2020

 C:\Users\togga_000\My Documents-T\Ferðafélag Akureyrar\Heimasíða og facebook FFA\Á heimasíðu FFA\Logo-800pkt.jpg

Covid-19: Skála- og tjaldgisting 2020

FFA ítrekar að þeir sem nota skála FFA virði hertar COVID-reglur hvað varðar sóttvarnir.

Ferðafélag Akureyrar leggur sig fram um að tryggja hreinlæti og sóttvarnir í samræmi við tilmæli frá embætti landlæknis og lágmarka þannig smithættu á kórónuveiru eins og hægt er miðað við aðstæður. Eins og fram hefur komið í máli sóttvarnarlæknis er tveggja metra reglan ekki lengur regla heldur tilmæli og valkvæð.

Ferðafélag Akureyrar getur ekki tryggt tvo metra á milli gesta í skálum.

Gestir eru á eigin ábyrgð í skálum og tjaldstæðum Ferðafélags Akureyrar.

___________

Skálar:

Verkferlar varðandi þrif hafa verið endurskoðaðir með tilliti til faraldursins. Auk þess munu handspritt og sótthreinsiúðar standa til boða í skálum félagsins þar sem skálaverðir eru. Þeir sem nota gönguskálana þurfa að huga að því að hafa spritt meðferðis og þrífa fyrir og eftir notkun skálanna. 

Sameiginlegir snertifletir skulu hreinsaðir vel fyrir og eftir eldamennsku og allt leirtau þrifið rækilega eftir hverja notkun með sápu og heitu vatni. Öllum afgangsmat skal henda.

Á salernum skálasvæða félagsins er fólk hvatt til að sótthreinsa snertifleti eftir notkun; s.s. handföng og borð.

Ómannaðir skálar Ferðafélagsins verða þrifnir í upphafi tímabils. Gestir eru hvattir til að þrífa skálann í upphafi dvalar og að sjálfsögðu eftir að dvöl lýkur auk þess sem gestir þurfa að taka allt sorp þegar skálinn er yfirgefinn.

Tjaldsvæði:

Á tjaldsvæðum Ferðafélags Akureyrar biðlum við til fólks að halda viðeigandi 4 m fjarlægð á milli tjaldhópa og milli ferðabíla.

___________

Ferðafélagið hvetur gesti til að sýna aðgát og tillitssemi í umgengni við aðra. Hugum að hreinlæti, bæði að reglulegum handþvotti ásamt því að spritta vel hendur þegar við á.

Frekari upplýsingar um framvindu faraldursins má finna á www.Covid.is