Erfiðleikastig

Ferðir eru flokkaðar í fjögur erfiðleikastig, þ.e. frá einum skó upp í fjóra skó.

Flokkun ferða er einungis til viðmiðunar. Einstakar ferðir geta fallið undir fleiri en einn flokk og ófyrirsjáanlegar breytingar á ytri aðstæðum eins og veðri geta haft áhrif á hversu erfið ferð reynist.

ATHUGIÐ: Áætlaður tími ferða er aðeins viðmið og fer eftir hópnum og aðstæðum hverju sinni.

 
Léttar og stuttar ferðir
: Stuttar dagleiðir, 4 - 6 klst. Mest gengið á sléttlendi. Engar eða litlar ár. Léttur dagpoki. Flestum fært.

 
Miðlungs erfiðar ferðir:
Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur.
Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.


Erfiðar ferðir:
Nokkuð langar dagleiðir, 6 - 8 klst. Gengið í fjalllendi og jafnvel lausum skriðum. Getur þurft að vaða erfiðar ár.
Ef gist er þá er það oftast í húsum en getur þurft að bera svefnpoka.

 
Mjög erfiðar ferðir: Erfiðar og langar dagleiðir, oft yfir 10 klst. Gengið með allt á bakinu, oft í bröttu fjalllendi, lausum skriðum og stórgrýti.
Búast má við erfiðum ám. Aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.