Um FFA

Ferðafélag Akureyrar (FFA) er áhugamannafélag um útivist sem vill stuðla að hreyfingu og ferðalögum á Íslandi, einkum Norðurlandi. Félagið var stofnað 8. apríl 1936.

FFA er fjölmennasta deildin innan Ferðafélags Íslands (FÍ). 

Félagið er sjálfboðaliðafélag. Í félaginu starfar fjöldi nefnda í kringum verkefnin sem unnin eru í félaginu.

Rekstur skála er veigamikill þáttur í starfi félagsins en alls á félagið og rekur þrjá stærri skála og fjóra gönguskála. Öll vinna í kringum skálana er unnin í sjálfboðaliðsvinnu nema skálavarsla.

Félagið skipuleggur ferðir og gefur út ferðaáætlun fyrir hvert ár ar á meðal veglega gönguviku í júní.

Félagið gefur árlega út tímaritið Ferðir. Það hefur komið út nær óslitið síðan 1940.

Þaulinn er gönguleikur sem félagið hefur staðið fyrir síðan 2010. Inn í þann leik bættist krakkaþauli árið 2017. Á árinu 2020 hóf félagið að skipuleggja sérstök hreyfiverkefni þar sem fólki stendur til boða að skrá sig í hóp um ákveðin verkefni.

Árið 2021 voru settar á áætlun sérstakar  barna- og fjölskylduferðir sem markar upphaf skipulagðs barna- og fjölskyldustarfs auk krakkaþaulans. Markmiðið er að hvetja börn og foreldra til samveru og hreyfingar úti í náttúrunni. Ferðir og annað starf sem verður undir merkjum barna- og fjölskyldustarfs er miðað við forsendur barna og sniðið að þeirra þörfum.