Fara í efni  

Þaulinn 2025

Gönguleikurinn 2025

Hvað merkir orðið Þauli?

 

Skv. Íslenskri orðabók merkir orðið að “ganga í þaula, ganga fram og aftur á einhverju svæði” þ.e. að kanna eitthvað í þaula, verða þaulkunnugur. Það er einnig til í öðrum merkingum s.s. að lesa eitthvað í þaula þ.e. að lesa eitthvað vel og vandlega.

Einhverjar heimildir segja að það merki seigur, duglegur, gefst ekki upp....

5 stöðvar í leik fullorðinna og 3-4 í leik krakkanna

Yfirlit yfir stöðvar 2025 
(hægt að prenta út)

Ef þið eruð ekki alveg viss um hvar þessir staðir eru þá getur verið gott að fletta þeim upp á maps.is

Náttúran við Eyjafjörð býður upp á mörg spennandi tækifæri til hollrar og skemmtilegrar útiveru. Í samstarfi við nokkrar stofnanir og fyrirtæki á Akureyri vill Ferðafélag Akureyrar gera sitt til að kynna Eyfirðingum og öðrum landsmönnum útivistarmöguleika svæðisins fyrir alla fjölskylduna. Þetta gerir FFA m.a. með gönguleik sem kallaður er Þaulinn. Hann skiptist í flokk fullorðinna annars vegar og flokk krakka yngri en 12 ára hins vegar. Leikurinn gengur út á að fara á fimm stöðvar fyrir fullorðna og þrjár til fjórar stöðvar fyrir krakka.
Leikurinn er skemmtileg og góð afþreying fyrir alla fjölskylduna og glæsilegar útivistarvörur í vinning! Til að eiga möguleika á vinningi þarf að skila útfylltu og götuðu svarblaði á skrifstofu Ferðafélags Akureyrar. Lokafrestur til að skila inn svarblaði er 20. september 2025

Á hverri stöð eru gögn frá FFA; kassi með plastumslagi og gestabók. Ef gestabók er fyrir á staðnum þá er plastumslagið að finna í kassa hjá gestabókinni. Í umslaginu er gatari, kort og leyniorð eða þraut sem á að skrifa á svarblaðið. Áætlaður göngutími er aðeins viðmið, hann fer eftir hverjum og einum og aðstæðum hverju sinni.

Svarblöð er hægt að fá á skrifstofu Ferðafélags Akureyrar, Strandgötu 23, Akureyri. Einnig er hægt að prenta þau út hér af síðunni.

Fullorðnir:
Ef þú ferð á allar stöðvarnar fimm, svarar leyniorðunum rétt, gatar svarblaðið
og skilar því til FFA, þá áttu möguleika á vinningi.

Svarblað til útprentunar fyrir fullorðna - hér (2 blöð)

Leyniorðin í leik fullorðinna 2025 finnur þú á þessum stöðum:

Grenivíkurfjall
kort - lýsing

Hálshnjúkur
kort - lýsing

Lönguhlíðarfjall
kort - lýsing

Reistarárskarð
kort - lýsing

Súlur
kort - lýsing

Krakkar yngri en 12 ára:

Ef þú ferð á þrjár stöðvar, leysir þrautirnar sem eru á staðnum, gatar svarblaðið
og skilar því til FFA, getur þú átt möguleika á vinningi.
Ef þú ferð á fjórar stöðvar þá færðu vinning.
Allir þátttakendur í leik fyrir krakka fá viðurkenningu.

Svarblað til útprentunar fyrir krakka - hér (2 blöð)

Í krakkaþaulanum 2025 er lítil þraut á hverri stöð,
þær finnur þú á þessum stöðum:

Gamli
kort - lýsing

Gömlu brýrnar
kort - lýsing

Haus í Staðarbyggðarfjalli
kort - lýsing

Hálshnjúkur í Fnjóskadal
kort - lýsing

 

 

Hér eru gps punktar fyrir stöðvarnar 2025:
Sumir staðirnir eru ekki nákvæmlega skilgreindir þannig að það gæti verið einhver ónákvæmni í þessum tölum. Hnitin miðast við sjálfan ákvörðunarstaðinn ekki leiðina. Ath. að þegar áfangastaðurinn er sýnilegur á GPS-tækinu í göngunni verður líka að taka mið af landslaginu og slóðinni í dimmviðri.

Fyrirhugað er að hafa uppskeruhátið þegar leiknum lýkur og draga út vinningshafa við þá athöfn. Það verður auglýst nánar síðar.
Hafir þú fyrirspurnir eða vantar upplýsingar, vinsamlegast hafðu þá samband við skrifstofu FFA, sími 462 2720 mánud. - fimmtud. kl. 14.00-17.00 og föstudaga 13 - 16 fram til 1. september
eða sendu tölvupóst á ffa@ffa.is

--------------------------------------------

Styrktaraðilar sem gefa vinninga: