19.ágúst: Vesturárdalsleið (3 skór)

Hér er gengin fáfarin leið milli Skíðadals og Kolbeinsdals í Skagafirði (sjá umfjöllun í Árbók FÍ 1990).

Ekið að Stekkjarhúsum í Skíðadal og þaðan gengið inn Vesturárdal norðan ár og uppúr dalbotninum yfir í Ingjaldsskál og niður í Kolbeinsdal í Skagafirði. Ef veður leyfir verður gengið á fjallið Ingjald fyrir botni Vesturárdals. Göngutími ca.8 klst, lengd 15-16 km.

Fararstjóri Una Sigurðardóttir og er brottför frá skrifstofu FFA kl.8:00.

Verð kr.5.100.-/6.000.- (fararstjórn og rúta)