Ævintýrasigling með Húna II. Þrjár eyjar á sumarsólstöðum.

Ævintýrasigling með Húna II.   Þrjár eyjar  á  sumarsólstöðum.

Hollvinir Húna II og Ferðafélag Akureyrar bjóða upp á heimsókn í þrjár eyjar með fararstjóra og staðkunnum leiðsögumönnum.

Brottför frá Akureyri  þann  20.06.kl.16:00

Komið í Flatey á Skjálfanda kl. 21:00

Leiðsögn um eyjuna.

Brottför frá Flatey kl 24:00

Komið í Grímsey kl. 03:00

Gist í Grímsey

Laugardagur 21.06. gengið um eyjuna og hún skoðuð fyrripart dags

Kl. 15:00 lagt af stað í siglingu umhverfis eyjuna.

Gist aftur í Grímsey

Brottför frá Grímsey 22.06. kl. 09:00

Komið í Hrísey kl. 13:00

Gengið um eyjuna og hún skoðuð

Brottför frá Hrísey kl. 16:00

Komið til Akureyrar kl 18:30

Þátttakendur þurfa sjálfir að sjá sér fyrir gistingu í Grímsey  og hafa með sér nesti,  nánari upplýsingar þar um á skrifstofu FFA.

Um borð í Húna verða seldar léttar veitingar

Skráning fer fram á vef FFA og á skrifstofunni.

Verð  í ferðina er kr. 34.000.  Innifalið:  Fararstjórn, leiðsögn og sigling.

Skrifstofa FFA er opin mánudaga – föstudaga kl. 11:00 – 13:00 og á föstudögum fyrir ferðir  kl. 18:00 – 19:00.

Áskilinn er réttur til breytinga, eða að fella ferðina niður vegna þátttökuleysis eða aðstæðna.