Árgjald FFA 2019

Félagar í FFA athugið, þeir sem hafa greitt árgjald vegna 2019 og eru búsettir á Akureyri og nágrenni eru vinsamlegast hvattir til að sækja árbókina, félagsskírteini og tímaritið Ferðir á skrifstofu félagsins sem er opin alla virka daga frá kl. 14 til 17. Þeir sem eiga eftir að greiða og vilja greiða á skrifstofunni eru líka velkomnir.