Draflastaðafjall, 734 m. (fjall mánaðarins)

Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Gunnar Halldórsson.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið frá bílastæði efst á Víkurskarði og upp á fjallið, notið útsýnis og genginn góður hringur á fjallinu.
Þetta er frekar létt ganga við flestra hæfi.
Vegalengd 10 km. Hækkun 390 m.