Ferð morgundagsins og árbók FÍ

Miðhálsstaðaháls á morgun
Miðhálsstaðaháls á morgun

Við minnum á ferð morgundagsins á fjall mánaðarins, Miðhálsstaðaháls.
Brottför kl. 8.00 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.

Gengið er frá Miðhálsstaðarskógi, suður og upp með hryggnum. Siðan er gengið niður sömu leið og er leiðin mjög auðfær. Vegalengd samtals 8 km. Gönguhækkun 370 m.

Við áttum von á árbók FÍ núna fyrir helgi en það lítur út fyrir að hún komi ekki fyrr en í næstu viku. Við munum að sjálfsögðu setja inn tilkynningu hér, á facebook og í tölvupósti til ykkar sem eruð skráð á póstlistann um leið og hún kemur í hús. Greiðsluseðlar fyrir árgjaldi FFA 2017 verða sendir á heimabanka félaga í næstu viku og í kjölfarið verður hægt að nálgast bókina hér á skrifstofu félagsins.

Góða helgi :)