Jeppaferð 11-13 ágúst: Gæsavatnaleið, myndir

Nokkrar myndir úr jeppaferðinni og ferðasagan.

Jeppaferð FFA 2006.

Jeppaferð FFA um Gæsavatnaleið hófst frá skrifstofu félagsins kl.18.15 föstudaginn 11.

ágúst. 7 manns mætti á 3 bílum. Vegurinn í Eyjafjarðardalnum var alveg sæmilegur og

höfðum við stuttan stans á brún dalsins, þar sem Sandbúðir stóðu fyrrum. Síðan ekið beint

í Laugafell. Ömurlegt er að sjá öll hjólförin eftir utanslóðaökumennina. Veðrið var gott.

Hægviðri, léttskýjað og hlýtt. Okkur var ætlaður staður í gamla skálanum. Grilluðum og

sögðum skemmtisögur um stund og fórum þvínæst í laugina. Í svefnpokana um miðnættið.

Á laugardagsmorgninum, eftir morgunverð og morgunbað lögðum við af stað um 10 leytið.

Ókum uppá Laugafellið og nutum útsýnis. Sömu leið niður, eftir Forsetaveginum og í

Tómasarhaga.

Þar byrjar hin eiginlega Gæsavatnaleið. Ekkert markvert bar til tíðinda, lítið í ánum frá Tungnafellsjöklinum. Vestan við brúna á Skjáfanda er stuttur spölur að fossinum Gjallanda,

fallegur foss. Austan brúarinnar er 6-8 km. vegur, niðir með fljótinu,  að Hitulauginni.

Sæmilega volg lítil laug sem hefur verið lagfærð svolítið. Hin eiginlega Gæsavatnaleið liggur

síðan í átt að jöklinum og austurmeð honum en svokölluð Dyngju eða Trölladyngjuleið

stefnir norðurfyrir Trölladyngju. Smámsaman varð leið grófari og seinfarnari. Í Gæsa-

vötnum drukkum við hádegiskaffið okkar, fengum leyfi þeirra er höfðu skálann, til að vera

inni. Skemmtileg ökuleið þarna með jöklinum.Þar sem vegurinn liggur næst jökli á Dyngju-

hálsinum komum við að Kattarbúðum. Kattarbúðir voru  hraunborg eða hóll, holur að

innan með gati í toppinn og dyragati á hliðinni. Jökullinn hljóp og braut  hólinn að nokkru

leyti niður. Þarna hafði Baldur Sigurðsson sína fyrstu bækistöð er hann var að hefja sínar Vatnajökulsferðir. Áfram í gegnum úfið hraun og við hóla norðanundir Kistufelli er lítill

skáli I eigu Bj.sv. Stefán í Mývatnssveit. Fremur “þreytulegt”hús sem þyldi vel smá

umhirðu. Þar var erlent par sem var á göngu frá Skógarfossi til Mývatnssveitar.Þarna er

ansi gróft og rólega ekið. Á Urðarhálsinum stoppuðum við stórt og mikið jarðfall sem ég

hef ekki heyrt nokkurt nafn á, bara jarðfallið á Urðarhálsi. Fór nú að halla niður á Jökulsár-

aurana. Við hóla rétt ofan við “Flæðurnar”var síðdegiskaffið. Sáralítið vatn var á Flæðunum

og ókum viðstöðulaust að upptökum Svartár þar sem hún kemur í ótal uppsprettum uppúr

svörtum sandinum. Þarna voru nokkur tjöld. Í Dreka vorum við um kl. 20.00.Kveikt upp

í grillinu og útbúinn góður kvöldverður. Okkur hafði verið ætlað pláss í gamla Dreka, ásamt

 5 útlendingum og Ingvari Teitssyni formanni FFA.  Fórum að sofa um 23.

Á sunnudagsmorguninn vöknuðum við um 8 leytið.Þá var Ingvar búinn að vinna í klst. og

útlendingarnir farnir. Fengum okkur morgunverð í rólegheitum, settum eldsneyti á bílana og

Björn hjálpaði Þráni hjá SBA við rútudekk. Gengum inn í Drekagil og ókum svo inn að

Nautagili. Stikluðum lækinn og gengum inn í botn á gilinu. Þar er minnsta hraun á Íslandi að

talið er, fyrir utan borholuhraun í Bjarnarflagi. Mjög sérstök “bergrós” er hægra megin í

gilinu, framarlega. Falleg Eyrarrósabreiða er á eyrunum framan við gilið. Ókum nú að

brúnni á Jöklu, við Upptyppinga, og svo eftir mjög fallegri og sérstakri leið, einhverri

skemmtilegustu sem ég hef ekið, að Hvannalindum. Skoðuðum menjar eftir útilegumenn

sem þar höfðust við. Kaffisopi í logni og sólskini. Ókum síðan með tveim smástoppum að

Möðrudal, þar sem bætt var lofti í dekkin. Fengum okkur kaffisopa í veitingahúsinu sem er

í torfbæ. Einnig er bensíndælan í slíku húsi. Niðri á tjaldstæðinu er eitt slíkt þjónustuhús,

með gashellum og vatni í vaska, fyrir tjaldgestina. Mjög flott þjónustumiðstöð. Skammt

vestan við brúna á Jökulsá, við litla malarkrús, er afleggjari að gamla ferjumannshúsinu

 “draugahúsinu” . Þar er gestabók sem við rituðum nöfn okkar í. Á hótel Gíg í Mývatns-

sveit snæddum við ljúfan kvöldverð og vorum um kl. 22 á Akureyri.