Kerling. 1538 m. Sjö tinda ferð

Gengið á hæsta fjall í byggð á Íslandi, Kerlingu í Eyjafirði (1538 m). Ekið að Finnastöðum  og farið þaðan á fjallið, gengið norður eftir tindunum, Hverfanda (1320 m),  Þríklökkum (1360 m), Bónda (1350 m), Litla Krumma, Stóra Krumma, Syðrisúlu (1213), og Ytrisúlu (1144). Síðan niður í Glerárdalinn þar sem ferðin endar. Vegalengd um 20 km. Topp ferð. 
Fararstjórar: Sigurlína Jónsdóttir, Frímann Guðmundsson.
Verð: kr. 3.500 / kr. 3.000
Innifalið: Fararstjórn.
Brottför frá FFA kl. 8.00