Krafla – Þeistareykir – Kísilvegur. Skíðaferð

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.
Verð: 9.900/8.900. Innifalið: Fararstjórn, gisting og akstur að hluta.
Ekið er á einkabílum upp á Kísilveg þar sem bílar eru geymdir og rúta flytur okkur í Kröflu. Þaðan verður skíðað til Þeistareykja og gist. Næsta dag er gengið til vesturs og inn á Kísilveg þar sem bílarnir bíða.
Vegalengd alls um 44 km.