Laufáshnjúkur. Jónsmessunæturganga.

Brottför kl. 21 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Einar Brynjólfsson.
Verð: 2.500/2.000.  Innifalið: Fararstjórn.
Ekið að prestssetrinu Laufási og gengið þaðan á hnjúkinn. Auðvelt er að komast upp en síðasti hlutinn er nokkuð brattur. Þegar upp er komið blasir við stórkostlegt útsýni yfir Eyjafjörðinn og Höfðahverfið.
Vegalengd 6 km. Hækkun 680 m.