Næsta ferð: Bakkar Eyjafjarðarár

Bakkar Eyjafjarðarár. Skíðaferð skidi
13. janúar. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Anke Maria Steinke. Verð: 3.000/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gangan hefst við bílastæðið við gamla Leiruveginn að austan. Létt og þægileg gönguleið fyrir alla sem ekki langar að fara í bröttu brekkurnar. Upplögð fjölskylduferð.

ATH: Fyrirvari á ferðinni er að mikið hefur hlánað síðustu daga og óvíst með skíðafæri um helgina. Því má eiga von á einhverjum breytingum á ferðatilhögun.