Næsta ferð: Bræðrafell – Askja

Bræðrafell – Askja skor skorskor

27.-30. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum (jeppum) frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Verð: 35.000/23.000. Innifalið: Fararstjórn og gisting. Bílar þátttakenda verða ferjaðir af landvörðum frá Herðubreiðarlindum upp í Dreka. Í ferðum Ferðafélags Akureyrar þar sem sameinast er í bíla taka allir þátt í kostnaði með því að greiða bílstjóra hvers bíls fyrir sig.
1.d. Ekið í Herðubreiðarlindir, eftir kaffihressingu er gengið um fremur greiðfært hraun í Bræðrafell og gist þar, 17 km.
2.d. Gengið á Kollóttudyngju og Bræðrafell skoðað. Gist í Bræðrafellsskála.
3.d. Gengið frá Bæðrafelli í Drekagil, 17 km. Gist í Dreka.
4. d. Gengið frá Dreka yfir Dyngjufjöll að Öskju. Hópurinn sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka í Dreka þar sem bílarnir bíða. Ekið heim um kvöldið.
Í ferðum Ferðafélags Akureyrar þar sem sameinast er í bíla taka allir þátt í kostnaði með því að greiða bílstjóra hvers bíls fyrir sig.

Eins og er eru örfá pláss laus, munið að skrá ykkur hér